Stjórnlagaþing er í vændum, þess vegna þurfum við sem almenningur upplýsingar. Kjörstjórn hefur tilkynnt að rúmlega 500 framboð hafi borist á stjórnlagaþingið.
Hverjir eru þetta? Fjölmiðlar munu ekki geta fjallað vandlega um alla frambjóðendur en þar tekur Götudómstóllinn við. Götudómstóllinn ætlar sér að fjalla um frambjóðendur til stjórnlagaþings, kosti þeirra og galla, óháð flokkadráttum og hagsmunahópum. Enda er Götudómstóllinn frjáls og engum háður. Nafnleysi Götudómstólsins hjálpar til við að halda dómstólnum frjálsum og óháðum.
Það verður að tryggja að þekktir einstaklingar í framboði fái ekki meira vægi í umfjöllun fjölmiðla en aðrir sem bjóða sig fram!
Götudómstóllinn er dómstóll fólksins og eru lesendur síðunnar beðnir um að taka þátt við efnisöflun enda er ansi mikið verk að fjalla um ríflega 500 frambjóðendur. Ef þið hafið einhverjar upplýsingar um frambjóðendur þá er ykkur skylt sem þegnar þessa lands að senda Götudómstólnum þessar upplýsingar. Þið getið sent dómstólnum upplýsingar á netfangið gotudomstollinn@gmail.com. Götudómstóllinn heitir fullkominni nafnleynd en ef lesendur vilja gjörtryggja nafnleysi sitt þá er hægt að nota þjónustur á netinu til þess (http://anonymouse.org/anonemail.html).
Kjörstjórn hefur ekki gefið út lista yfir frambjóðendur en hefur lofað að birta hann fyrir 3. nóvember. Dómstóllinn bíður spenntur eftir því að þessi listi verði birtur. Þangað til mun dómstóllinn grafast fyrir um hverjir eru í framboði og reyna eftir fremsta megni að fjalla um þá.
Að fjalla um jafn marga og eru í framboði er gífurlega mikið verk og eins og gefur að skilja mun dómstóllinn aldrei komast yfir það án ykkar hjálpar, lesendur góðir. Því er rétt að ítreka að þið verðið að hjálpa til, lesendur góðir. Það eruð þið sem þurfið að taka ákvörðun 27. nóvember, framtíð landsins er í húfi!